Halló halló, kæru nemendur!
Í lok febrúar verður haldin stórkosleg stuttmynda-/ sketskeppni í FSN! Það mega allir taka þátt og það verða alveg geðveik verðlaun í boði fyrir fyrstu 3 sætin!!!
Til þess að taka þátt þarft þú:
- UPPTÖKUVÉL eða MYNDAVÉL eða BLAÐ OG BLÝANT (Það getur bæði verið stuttmynd, stop-motion mynd eða teiknimynd). Einnig má taka upp brandara! Efnið verður að vera ferskt (eða frá því 2010 og ekki er leyfilegt að bjóða fram gamalt efni í keppnina!)
- LIÐ. Í liðinu mega vera 2-7 manneskjur (aðalleikarar meðal þeirra). En auðvitað er öllum velkomið að hafa aukaleikara!
- GÓÐ HUGMYND af sögu eða brandara!!!
- STUTTMYND, sem ekki er styttri en 2 mín og ekki lengri en 10 mín!!!
Bráðum verður skráningarblaðið hengt upp, en þangað til vil ég kveðja ykkur. :)
Alexandra Geraimova,
Formaður Ljósmynda- og Stuttmyndaklúbbsins Moviola.





