NFSN

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Lög NFSN

Þessi lög eru ekki gild frá og með 27. apríl 2010.  Unnið er að uppfærslu.

 

I. kafli. Almenn ákvæði

1. gr.

Félagið heitir Nemendafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga, skammstafað NFSN. Heimili þess og varnarþing er í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Grundargötu 44, Grundarfirði.

2. gr.

Hlutverk félagsins er:

  1. Að standa vörð um sameiginlega hagsmuni nemenda.
  2. Að stuðla að blómlegu og kröftugu félagslífi á meðal nemenda í FSN.
  3. Að efla tengsl nemenda innbyrðis, sem og við aðra skóla.

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því:

  1. Að halda félagsfundi eins oft og þurfa þykir.
  2. Að styðja nemendur í því sem þeir eru að aðhafast í félagsstörfum.
  3. Að efna til ýmissa uppákoma og mannfagnaða.

4. gr. Félagsmenn

Allir nemendur FSN sem greiða gjald til nemendafélagsins eru sjálfkrafa félagsmenn. Félagsmenn NFSN skulu greiða lægra gjald en utanfélagsmenn inn á viðburði þá sem NFSN stendur fyrir. Reikningsár félagsins er frá 16. júní til 15. júní ár hvert.

II. kafli. Stjórn félagsins

5.gr.

Stjórn félagsins skal að lágmarki skipuð fjórum aðilum, sem kosnir eru í listakosningu í vorkosningum. Forseta, ritara, gjaldkera og formanni skemmtinefndar.

6. gr.

Verksvið aðalstjórnar er:

  1. Að hafa útskurðarvald í málefnum NFSN.
  2. Að hafa yfirumsjón með allri starfsemi nemendafélagsins og koma fram fyrir hönd félagsins.
  3. Að sjá um úthlutun fjár til nefnda NFSN og vinna fjárhagsáætlun fyrir hverja önn.
  4. Að halda fund minnst einu sinni í viku. Minnst þrír stjórnarmenn verða að sitja fund svo hann sé löglegur.
  5. Að vera nemendaráð skv. lögum um framhaldsskóla.

7. gr. Um störf forseta

Forseti nemendafélagsins er yfirmaður félagsins og fulltrúi þess út á við. Forseti er staðgengill gjaldkera, en öðlast þó ekki atkvæðisrétt gjaldkera í fjarveru hans. Forseti hefur oddaatkvæði ef ágreiningur er í aðalstjórn. Forseti er áheyrnarfulltrúi nemenda, með tillögurétt, í skólanefnd FSN. Forseti skal vera lög- og sjálfráða.

8. gr. Um störf ritara

Ritari á að rita fundargerðir á fundum aðalstjórnar og á aðalfundi NFSN. Hann skal sjá um varðveislu sögulegra gagna. Ritari er staðgengill forseta, en öðlast þó ekki atkvæðisrétt forseta í fjarveru hans.

9. gr. Um störf gjaldkera

Gjaldkeri skal hafa yfirumsjón með fjármálum NFSN þ.m.t. að úthluta fé til hinna ýmsu nefnda og klúbba innan félagsins. Gjaldkeri skal halda bókhald fyrir hönd NFSN og skulu reikningar félagsins lagðir fram til endurskoðunar er skólaári lýkur. Endurskoðendur reikninga eru skipaðir af skólameistara í upphafi haustannar. Gjaldkeri skal sjá til þess að ársreikningur síðasta skólaárs sé birtur í skólablaði félagsins og á heimasíðu félagsins. Gjaldkeri skal gera grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins á hverjum félagsfundi eða oftar ef þess er þörf að mati nemenda. Þegar skólaári lýkur skulu reikningar nemendafélagsins vera nemendum aðgengilegir, og opnir hverjum sem er til að skoða.

10. gr. Um störf formanns skemmtinefndar.

Formaður skemmtinefndar, skal ásamt öðrum meðlimum aðalstjórnar sjá um að skipuleggja félagslíf í skólanum í samvinnu formenn nefnda og ráða og við þá aðila sem að þeim málum koma.

11. gr.

Komi upp óánægja meðal félagsmanna um ákvörðun stjórnar nemendafélagsins, geta þeir með undirskriftalista krafist þess að boðað verði til félagsfundar, sem hefur þá úrslitavald í málinu. Á listanum verður að vera nöfn a.m.k. 1/3 hluta félagsmanna.

12. gr. Vantraust

Þriðjungur félagsmanna getur líkt og í 11. gr. knúið stjórnina til að boða til fundar þar sem greidd skulu atkvæði um vantraust á stjórnina eða einstaka embættismenn NFSN. 2/3 hlutar félagsmanna verða að greiða atkvæði með vantrausti teljist það samþykkt. Ef tilskilinn meirihluti samþykkir vantraust skal stjórnin, eða sá embættismaður sem á í hlut, segja af sér. Þá skal boða til félagsfundar þar sem kosið skal upp á nýtt í þau/það embætti sem losnar. Þá skulu þeir aðilar sem boða til fundarins taka að sér stjórnarstörf í NFSN þar til ný stjórn finnst.

III. kafli. Ráð, félög og nefndir.

13. gr.

Öllum fullgildum félagsmönnum NFSN er heimilt að stofna klúbb innan NFSN, en þó í samráði við aðalstjórn. Aðalstjórn afgreiðir fjárbeiðnir klúbbanna. Formaður hvers klúbbs ber ábyrgð á starfsemi klúbbsins gagnvart aðalstjórn. Öllum klúbbum er heimilt að halda kynningarfund á haustönn, og vorönn ef ástæða þykir til.

14. gr. Skemmtinefnd

Skemmtinefnd starfar í nánu samstarfi við aðalstjórn og skal virkja klúbbaformenn við margskonar skemmtiviðburði. Hún skal hafa yfirumsjón með kaffihúsakvöldum og almennum dansleikjum. Skemmtinefnd skal útbúa fjárhagsáætlun í upphafi hverrar annar.

15. gr. Málfundafélag

Nafn félagsins er Málfundafélag NFSN. Tilgangur klúbbsins er annarsvegar að æfa meðlimi í ræðumennsku og rökfimi og hins vegar að auka þekkingu þeirra. Málfundafélag skal halda námskeið a.m.k. einu sinni á vetri, ef nægur áhugi er fyrir því. Formaður Málfundafélags skal í samvinnu við aðalstjórn skrá keppnislið FSN í MORFÍS ár hvert ef nægur áhugi er fyrir því. Formanni er skylt að skrá keppnislið FSN í spurningakeppni framhaldsskólanna, GETTU BETUR, ár hvert. Hann skal og hafa veg og vanda að undirbúningi beggja keppnisliðanna.

16. gr. Ljósmynda- og myndbandaklúbburinn Moviola

Nafn félagsins er Ljósmynda- og myndbandaklúbburinn Moviola. Ljósmynda- og myndbandaklúbburinn sér um allt sem við kemur myndböndum, upptökum og ljósmyndum á öllum helstu viðburðum NFSN og skal sjá til þess að upptökur á viðburðum séu sýndar á kaffihúsakvöldum NFSN. Félagið skal í samráði við vefnefnd koma myndum af viðburðum inná heimasíðu félagsins. Ljósmynda- og myndbandsklúbburinn skal halda stuttmyndakeppni á hverri vorönn ef næg þátttaka næst.

17. gr. Íþróttaráð

Nafn ráðsins er íþróttaráð NFSN. Formaður klúbbsins hefur yfirumsjón með íþróttastarfsemi á vegum NFSN. Hann skal sjá um skipulagningu og umsjón íþróttamóta á vegum NFSN og þeim mótum sem NFSN tekur þátt í.

18. gr. Vefnefnd

Nafn nefndarinnar er Vefnefnd NFSN. Markmið Vefnefndar er að stuðla að auknum tölvuáhuga og þekkingu á nýjustu tækni meðal nemenda. Vefnefnd ber ábyrgð á heimasíðu NFSN og sér um að uppfæra hana reglulega þannig að hún flytji ávalt nýjustu fréttir af skólalífinu.

19. gr. Árhátíðarnefnd

Nafn nefndarinnar er Árshátíðarnefnd NFSN. Hún skal skipuð þremur aðilum sem kosnir eru í listakosningu í vorkosningum. Árshátíðarnefnd skal sjá um að skipuleggja Árshátíð NFSN í fullu samstarfi við aðalstjórn og skila kostnaðaráætlun til gjaldkera. Árshátíð skal halda í lok sólardaga á vorönn.

20. gr. Ritnefnd skólablaðs og skólablaðið

Hlutverk skólablaðsins skal sem málgagn nemenda vera tvíþætt:

  1. Það skal flytja alls konar efni til fróðleiks og skemmtunar nemendum.
  2. Það skal segja frá helstu viðburðum skólalífsins nemendum til glöggvunar.

Ritnefnd skólablaðsins skal kosin í listakosningu. Ritnefndin ræður efnisvali og ákveður eintakafjölda og stærð í samráði við aðalstjórn. Einnig skal hún velja ábyrgðarmann úr röðum kennara. Eitt skólablað skal koma út á ári og eigi síðar en í Árshátíðarvikunni.

21. gr. Þemanefnd

Nafn nefndarinnar er Þemanefnd NFSN. Hún skal skipuð þremur aðilum sem kosnir eru í listakosningu í haustkosningum. Þemanefnd skal sjá um að skipuleggja Þemadaga í skólanum í samráði við aðalstjórn og yfirstjórn skólans.

IV. kafli Félagsfundir

22. gr. Nemendafundir (Málfundir)

Aðalstjórn skal boða til nemendafundar alla félaga NFSN, þegar hún telur þess brýna þörf eða ef um lagabreytingu er að ræða. Nemendafund skal boða með tveggja skóladaga fyrirvara og skal dagskrá, svo og lagabreytingar, séu þær teknar fyrir, vera tilbúnar og fylgja fundarboði. Einungis nemendafundur getur hnekkt ákvörðunum aðalstjórnar. Aðalstjórn er skylt að halda nemendafund krefjist minnst 1/3 hluti félagsmanna NFSN þess skriflega. Fundurinn skal þá haldinn hið fyrsta en auglýstur með venjulegum fyrirvara. 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til að samþykktir nemendafunda verði löglegar. Nemendafélagsfundur er ekki löglegur nema 20% félagsmanna sitji fundinn.

23. gr. Aðalfundur

Aðalfund NFSN skal halda um miðjan apríl. Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:

  1. Aðalstjórn skólaársins gerir grein fyrir störfum sínum.
  2. Gjaldkeri gerir ítarlega grein fyrir fjárhag félagsins.
  3. Skýrslur félaga og klúbba NFSN.
  4. Leynileg kosning jafnra frambjóðenda.
  5. Úrslit vorkosninga kunngjörð.
  6. Ný aðalstjórn hefur störf undir vendarvæng fráfarandi aðalstjórnar út skólaárið.
  7. Önnur mál

Sömu lög gilda um atkvæðagreiðslu á aðalfundi og á nemendafundi, nema þegar kosið er um frambjóðendur en þá gildir einfaldur meirihluti.

V. kafli Kosningalög NFSN

24. gr. Almenn kosningaákvæði

Tvisvar á skólaári eru kosningar, þ.e. haustkosningar og vorkosningar. Haustkosningar skulu fara fram þriðju viku haustannar. Vorkosningar skulu fara fram tveimur dögum fyrir aðalfund NFSN, skv. 32. gr. Frambjóðendur verða að vera meðlimir NFSN. Í eftirtalin embætti skal kjós listakosningu: Aðalstjórn, Árshátíðarnefnd, Stjórn Ljósmynda- og myndbandaklúbbsins Moviola, Stjórn Vefnefndar og Ritnefndar skólablaðs. Óheimilt er að bjóða sig fram í nafni pólitísks flokks, flokksbrots eða trúarhóps. Kosningaáróður má ekki vera ærumeiðandi eða á nokkurn hátt ósæmilegur. Skal kjörstjórn ákveða hvað fellur undir framangreint og er henni heimilt að fjarlægja slíkt samstundis án þess að ræða það við viðkomandi frambjóðendur. Kosningar eru óhlutbundnar og fara þannig fram að kjósandi setur kross við einn eða engan frambjóðanda/lista til hvers embættis. Á atkvæðaseðli skulu standa nöfn frambjóðanda/lista til hvers embættis greinilega afmörkuð hvert frá öðru. Kjósendur skulu brjóta saman atkvæðaseðla sína að lokinni atkvæðagreiðslu og stinga þeim í þar til gerða kjörkassa. Allar kosningar NFSN eru leynilegar. Ef aðeins eitt framboð berst til embættis skal nafn framsjóðanda koma fram á kjörseðli með valmöguleikunum JÁ og NEI. Frambjóðandi þarf a.m.k. 50% stuðning til að hljóta embættið. Sé hvorki krossað við JÁ eða NEI er það atkvæði túlkað sem stuðningur við frambjóðandan. Embættismenn kosnir í haustkosningum taka strax við stöfum. Embættismenn kosnir í vorkosningum taka við stöfum í lok vorannar. Ný aðalstjórn skal þó starfa samhliða fráfarandi aðalstjórn eftir aðalfund til loka vorannar.

25. gr. Kjörstjórn

Í kjörstjórn eiga sæti þrír aðilar. Ritari aðalstjórnar er sjálfskipaður formaður en aðrir stjórnarmenn skulu vera tveir útskriftarnemar sem útskrifast þá önn sem kosið er og gegna engum embættum innan NFSN. Kjörstjórn sér um framkvæmd kosninga. Hún sér um að auglýsa kjördaga og framboð. Kjörstjórn skal sjá til þess að kosningar fari skipulega og löglega fram. Kjörnefnd tekur við framboðum. Hún skal tilkynna frambjóðendum í tæka tíð ef framboð eru ekki lögleg skv. lögum þessum. Kjörstjórn skal sjá um framvæmd kosningafundar er haldin skal fyrir kosningar að vori. Á honum verða frambjóðendur kynntir. Einnig skulu frambjóðendur kynna sig á heimasíðu NFSN. Kjörnefnd telur atkvæði og skulu úrslit haustkosninga birt næsta skóladag en vorkosninga á aðalfundi NFSN. Ef atkvæði falla jöfn milli frambjóðenda embættis skal kjósa aftur á milli þeirra á aðalfundi NFSN.

26. gr.

Í haustkosningum skal kjósa:

  1. Nýnema í nefndir og ráð (skemmti-, árshátíðar, vef- og ritnefndir)
  2. Þemanefnd – 3 aðilar
  3. Laus embætti innan NFSN ef einhver eru

Í vorkosningum skal kjósa:

  1. Nýja aðalstjórn, forseta, gjaldkera og ritara
  2. Skemmtinefnd – formaður og 3 meðstjórnendur
  3. Formann Mælskuklúbbs
  4. Formann Íþróttaráðs
  5. Formann ljósmynda- og myndbandaklúbbsins Moviola
  6. Stjórn Vefnefndar – formaður og meðstjórnandi
  7. Ritnefnd skólablaðs – ritstjóri og 2 blaðamenn

VI. kafli Ýmiss ákvæði

27. gr. Fríðindi

Allir félagsmenn NFSN vinna sjálfboðavinnu að málefnum félagsins. Þó skal aðalstjórn fá frítt inn á alla viðburði sem NFSN stendur fyrir, árið sem þeir eru í aðalstjórn. Aðrir embættismenn skulu fá helmings afslátt inn á alla viðburði. Aðalstjórn er þó heimilt að afnema afsláttinn ef embættismenn sinna ekki skyldum sínum.

28. gr. Um varðveislu laganna

Lögin skulu varðveitt í tveimur samhljóða eintökum. Annað skal geymt á skrifstofu NFSN, nemendum til halds og trausts og til að hafa við höndina þegar upp koma deilumál innan félagsins sem þarfnast úrskurðar. Hitt eintakið skal varðveitt á skrifstofu skólameistara. Lögin skulu vera aðgengileg öllum á heimasíðu félagsins. Varðveisla laganna er á ábyrgð ritara og skal hann færa allar breytingar inn jafn skjótt og þær eru gerðar. Eintak sem geymt er á skrifstofu skólameistara telst hinu eintakinu áreiðanlegra ef upp koma ósamhljómanir í þessum ritum. Lög þau er geymd eru á nemendaskrifstofu skólans skulu teljast frumrit, enda hafa ekki aðrir aðgang að þeim en aðalstjórn. Komi upp ágreiningur túlkar aðalstjórn lögin. Lög þessi skulu vera til undirrituð af formanni NFSN og tengiliðum skólans til vottunar um að dagsetning á gildistöku laganna sé rétt.

Lög þessi taka gildi nú þegar að undangengu samþykki félagsfundar NFSN. Við það falla öll fyrri lög og viðbætur við þau úr gildi.

29. gr.

Ef hafa þarf afskipti af nemanda á viðburði á vegum NFSN sökum slæmrar hegðunar gæti sá hinn sami átt það á hættu að sæta viðurlögum. Ef einstaklingurinn er ekki félagsmaður NFSN færist ábyrgðin yfir á ábyrgðarmann þess einstaklings. Viðurlög við broti/brotum eru ákveðin af aðalstjórn NFSN í samráði við skólameistara FSN.

30. gr.

Stjórn NFSN áskilur sér fullan rétt til að sleppa því að fara eftir einhverjum ákvæðum þessara laga ef svo ber undir að fjárhagur félagsins leyfi það ekki. Það skal hafa forgang fram yfir lögin að aðalstjórn skili frá sér skuldlausu nemendafélagi til næstu aðalstjórnar.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 27. apríl 2010 18:29  

Skoðanakönnun

Þetta er skoðanakönnun.
 

Menn Vikunnar

Sigurvegarar Stingerkeppni NFSN

Heimir Þór Ásgeirsson

Guðmundur Ingi Gunnarsson


9/3/2010 - 16/3/2010